Vill frekar gera plötuna eins og maður Benedikt Bóas skrifar 14. maí 2018 06:00 Stefán Jakobssoner nýbúinn að kaupa æskuheimilið sitt af foreldrum sínum og er að fara gera það upp. „
Það er pínu spennandi að vita hvaða snillingur keypti heimboðið í Mývatnssveit. Ég reikna allavega með því að sá hinn sami sé snillingur og ég held að þetta verði geggjuð helgi enda er ég að bjóða viðkomandi heim til mín yfir heila helgi,“ segir Stefán Jakobsson söngvari en honum tókst að safna sér fyrir sólóplötu sinni á Karolina Fund. Þegar átta dagar voru eftir af söfnuninni náði Stefán tilætlaðri upphæð en hann setti markið að rúmri milljón. Hann seldi meðal annars einkatónleika á 120 þúsund krónur og heimboð til sín í Mývatnssveit á um 50 þúsund. Þar var innifalið gisting fyrir tvo í tvær nætur í heimagistingu, kvöldverður fyrir tvo á úrvals veitingastað í Mývatnssveit, ásamt leiðsögn um æskustöðvar Stefáns í sveitinni. Trúlega mun hann gefa viðkomandi reyktan silung – sem er sannkallað hnossgæti. Þá seldi hann nokkur persónuleg listaverk sem hann gerir ásamt stálsmiðjunni Hamri.Einn keypti heimboð til Stefáns í Mývatnssveit, sem er fegursti staður landsins. Fréttablaðið/GVA „Þeir gerðu míkrafónsstandinn minn forðum daga sem er búinn til úr átta kílóum af keðjum. Þeir skera út fyrir mig grunninn og ég klára mína hönnun. Þetta er tilvitnun í texta og heitir Frosinn í eldi starir í einmana glóð.“ Þrátt fyrir að hafa náð tilætlaðri upphæð ætlar Stefán að bíða með útgáfuna til haustsins. „Ég gat klárað plötuna en hugsaði að gera þetta frekar eins og maður. Þá get ég komið inn í haustið og það er auðveldara fyrir mig að fylgja henni eftir. Það voru veikindi í hópnum og það fóru þrjár vikur í súginn og alss konar vesen. Það er ekkert vit í að gefa út plötu sem maður getur ekki fylgt eftir. Það er ekki hægt að gera þetta bara einhvern veginn. Þannig að það þarf aðeins að bíða og það verður svo að vera.“ Nýtt lag er farið að hljóma á öldum ljósvakans, sem kallast Ánauð en áður var lagið Flóttamaður spilað töluvert. „Ég stefni á að koma þremur lögum út áður en platan kemur í búðir,“ segir hann.
Birtist í Fréttablaðinu Menning Mest lesið Ofboðslega stolt af dóttur sinni Lífið „Ef við erum lausnamiðuð þá sköpum við tækifærin“ Lífið Klæddu sig upp sem frambjóðendur Lífið Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór Lífið Dóttir Jolie og Pitt vill ekki heita Pitt lengur Lífið „Býr ekki lítil kerling innra með okkur öllum?“ Lífið Myndaveisla: Rosaleg stemming í kosningavökunum Lífið „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ Tónlist Davíð Helgason og Isabella eignuðust dreng Lífið Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Lífið Fleiri fréttir „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ „Aldrei verið jafn stolt af mér“ Páll Óskar og Skrattar í fyrsta sinn á sama sviði „BOY BYE“ við þá röngu en „BOY HÆ“ við þann rétta Bauð pabba að syngja með sér um íslensku sumargaslýsinguna Bashar Murad kemur fram á endalokum LungA „Við ætlum bókstaflega að rífa þakið af húsinu“ Rífandi stemning og valdefldar tónlistarkonur Tónleikum Nicki Minaj aflýst vegna fíkniefnahandtöku Segir skásta staðinn í bænum í kirkjugarðinum Iceland Airwaves kynnir 22 ný bönd til leiks „Þægileg blanda af von og trega“ Kom fram sem stórstjarna „Drull sama hvað einhver apaköttur segir“ Laufey tók lagið hjá Jimmy Fallon „Svo hræðilega óyfirstíganlegt að ég þurfti að rífa plásturinn af“ „Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“ Gítarleikarinn Duane Eddy er látinn MANOWAR til Íslands í fyrsta sinn Sjá meira