Fótbolti

Mancini tekur við ítalska landsliðinu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það er eflaust draumur að rætast hjá Mancini að fá að þjálfa landsliðið.
Það er eflaust draumur að rætast hjá Mancini að fá að þjálfa landsliðið. vísir/getty
Ítalir hafa fundið nýjan landsliðsþjálfara en Roberto Mancini hefur samþykkt tilboð frá ítalska knattspyrnusambandinu.

Þetta hefur Sky á Ítalíu fengið staðfest. Mancini mun skrifa undir tveggja ára samning við ítalska sambandið.

Mancini er laus allra mála hjá Zenit í Rússlandi en kemur til Rómar í dag og skrifar undir samninginn sem er fram yfir EM 2020.

Hann tekur á sig mikla launalækkun með því að skipta um starf á þessum tímapunkti. Hann átti tvö ár eftir af þriggja ára samning við Zenit en gefur eftir greiðslur upp á 1,6 milljarð króna með því að fara. Þessi laun fær hann ekki á Ítalíu.

Fyrsta verkefni Mancini með landsliðið verður vináttuleikur gegn Sádum þann 28. maí. Landsliðið kemur saman til æfinga þann 22. maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×