Fulham í úrslit Anton Ingi LEifsson skrifar 14. maí 2018 20:45 Leikmenn Fulham fagna í kvöld. vísir/getty Fulham snéri við taflinu gegn Derby í síðari undanúrslitaleiknum í umspili ensku B-deildarinnar en barist er um sæti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Derby var með 1-0 forystu eftir fyrri leikinn en Ryan Sessegnon kom Fulham í 1-0 í kvöld á 47. mínútu og jafnaði þar með metin í 1-1. Það var svo Denis Odoi sem skoraði markið sem skaut Fulham í úrslitaleikinn á 66. mínútu en títtnefndur Sessegnon lagði upp markið. 2-0 sigur og samanlagt 2-1. Liðið er komið í úrslitaleikinn og þar mæta þeir annað hvort Aston Villa eða Middlesbrough en Aston Villa vann fyrri leikinn 1-0. Sigurvegarinn úr þeirri rimmu fer upp í úrvalsdeildina ásamt Wolves og Cardiff. Enski boltinn
Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn
Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Íslenski boltinn
Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn
Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Íslenski boltinn