Fótbolti

Albert númer 4 í framlínunni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Albert í treyju númer 30 sem hann fær ekki að nota á HM.
Albert í treyju númer 30 sem hann fær ekki að nota á HM. vísir/afp
KSÍ hefur staðfest númeralista íslenska landsliðsins á HM í Rússlandi. Athygli vekur að yngsti leikmaður liðsins, Albert Guðmundsson, verður í treyju númer 4 en hann leikur í framlínu liðsins.

Ástæðan fyrir því er einföld. Hann er yngstur og númerið 4 var það eina sem eftir var fyrir hann. Albert hefur verið að spila í treyju númer 30 en aðeins má vera með númer upp í 23 á HM.

Aðrir leikmenn eru í treyjum með sínum venjulegu númerum.

Markmenn

1. Hannes Þór Halldórsson

12. Frederik Schram

13. Rúnar Alex Rúnarsson

Varnarmenn

2. Birkir Már Sævarsson

3. Samúel Kári Friðjónsson

5. Sverrir Ingi Ingason

6. Ragnar Sigurðsson

14. Kári Árnason

15. Hólmar Örn Eyjólfsson

18. Hörður Björgvin Magnússon

23. Ari Freyr Skúlason

Miðjumenn

7. Jóhann Berg Guðmundsson

8. Birkir Bjarnason

10. Gylfi Þór Sigurðsson

16. Ólafur Ingi Skúlason

17. Aron Einar Gunnarsson

19. Rúrik Gíslason

20. Emil Hallfreðsson

21. Arnór Ingvi Traustason

Sóknarmenn

4. Albert Guðmundsson

9. Björn Bergmann Sigurðarson

11. Alfreð Finnbogason

22. Jón Daði Böðvarsson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×