Fótbolti

Kjartan Henry fór illa með titilvonir Brøndby

Einar Sigurvinsson skrifar
Kjartan fagnar marki með Horsens.
Kjartan fagnar marki með Horsens. vísir/getty
Kjartan Henry Finnbogason tryggði Horsens jafntefli gegn Brøndby með tveimur mörkum í blálokin. Loktölur í leiknum voru 2-2 en Hjörtur Hermannsson spilaði síðasta korterið fyrir Brøndby.

Skömmu fyrir hálfleik komst Brøndby tveimur mörkum yfir með mörkum frá þeim Benedikt Röcker og Kamil Wilczek.

Það stefndi allt í sigur Brøndby þegar Kjartan Henry Finnbogason kom inn á 84. mínútu. Aðeins fimm mínútum seinna var hann búinn að minnka muninn fyrir Horsens. Hann var síðan aftur á ferðinni á 96. mínútu leiksins og jafnaði leikinn í blálokin.

Jafnteflið er slæm úrslit fyrir Brøndby sem er nú tveimur stigum á eftir Midtjylland fyrir lokaumferðina. Midtjylland getur því tryggt sér danska meistaratitilinn með sigri gegn Horsens á mánudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×