Handbolti

Agnar Smári: Get ekki endalaust verið stuðningsfulltrúi

Benedikt Grétarsson skrifar
Agnar stjórnaði sigursöng í lok leiks
Agnar stjórnaði sigursöng í lok leiks Vísir/Andri Marinó
Agnar Smári Jónsson fagnaði vel í leikslok í Kaplakrika í dag, rétt eins og hann gerði að Ásvöllum 2014 þegar ÍBV varð meistari. ÍBV varð Íslandsmeistari í annað sinn í sögu félagsins í dag.

„Stemmingin er gífurleg! Þetta er bara æðislegt en ég var reyndar búinn að gleyma því að við unnum í Hafnarfirði 2014. Þetta rennur allt í einn graut hjá mér. Þetta er bara frábært og við vinnum þrennuna í ár og ég veit ekki hvenær lið gerði það síðast.“

Gleðitilfinningin var að einhverju leyti smituð vegna þess að Agnar Smári yfirgefur ÍBV í sumar.

„Já, ég er að fara. Ég er ótrúlega stoltur af því sem við afrekuðum saman sem lið. Ég er búinn að eiga frábæran tíma í Eyjum og er pínu leiður að vera að yfirgefa ÍBV. Mér líður svo fáránlega vel þarna en ég er að fara í nám í bænum. Ég get ekki endalaust verið stuðningsfulltrúi og handboltamaður,“ sagði Agnar brosandi.

Agnar bendir á að Eyjamenn hafi verið með besta liðið og einnig lagt á sig gríðarlega vinnu.

„Hard work beats talent“ er sagt en það er bara ansi erfitt að vinna talent þegar það er líka að leggja á sig hard-work. Við erum frábærir og leggjum endalaust á okkur. Svo bara þér að segja, þá er bara ekkert rugl í þessum hóp. Það kom upp eitt leiðindar atvik en það er samt aldrei bjór inn í klefa eða eitthvað svoleiðis bull. Við erum bara með markmið og ætluðum að ná þeim sem lið.“

Og svo er það bara innsigling í Vestmannaeyjum, flugeldar og læti?

„Ég hlakka mikið til að sigla inn til Eyja en það er rétt að það komi fram að við siglum frá Þorlákshöfn í átta metra ölduhæð þannig að það verður geggjað,“ sagði örlítið kvíðinn Agnar Smári.


Tengdar fréttir

Umfjöllun: FH - ÍBV 20-28 | ÍBV er Íslandsmeistari

ÍBV er Íslandsmeistari karla í handbolta árið 2018. Eyjamenn unnu FH 20-28 í Kaplakrika og einvígið 3-1. ÍBV vann þar með þrefalt í vetur en áður hafði liðið tryggt sér bikar- og deildarmeistaratitilinn. Frábær árangur hjá frábæru liði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×