Innlent

Ekki ó­lík­legt að í­búar höfuð­borgar­svæðisins vakni við al­hvíta jörð í vikunni

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Þessi mynd er tekin síðastliðinn vetur þegar veðrið var ekkert sérstaklega gott við tjörnina í Reykjavík.
Þessi mynd er tekin síðastliðinn vetur þegar veðrið var ekkert sérstaklega gott við tjörnina í Reykjavík. vísir/vilhelm
Ekki er ólíklegt að íbúar á höfuðborgarsvæðinu vakni við alhvíta jörð í vikunni að sögn veðurfræðings þar sem kuldi og éljagangur eru í kortunum. Síðast snjóaði með þessum hætti í maí á suðvesturhorninu fyrir sjö árum.

Einhverjir ráku líklega upp stór augu í morgun þegar snjór tók að falla á fyrsta degi maímánaðar. Á vestanverðu landinu var nokkur éljagangur í morgun en Haraldur Ólafsson veðurfræðingur segir að snjórinn sem settist muni víðast bráðna í sólskininu í dag.

Vorið virðist þó ekki á allra næsta leyti.

„Horfurnar fram eftir vikunni eru þær að þessi vestanátt haldi bara áfram og verði alls ekki hlýrri heldur en hún er núna og jafnvel kaldari. Þannig að það eru töluverðar líkur á því að menn muni vakna upp einhvern daganna í vikunni við alhvíta jörð,“ segir Haraldur.

Snjókoman sem er væntanleg á Vestur- og Suðvesturlandi telst nokkuð sjaldgæf í maí en slíkt er algengara fyrir norðan.

„Það snjóar nægilega mikið til að það sé hægt að mæla snjódýpt á nokkurra ára fresti í Reykjavík í maí. Síðast kom töluverður snjór 2011, 1. maí, þá voru sextán sentimetrar sem er náttúrulega töluvert mikið.“

Vorblíðan virðist ekki vera í kortunum.

„Það lítur út fyrir að þetta endist fram á sunnudag þetta kuldakast. Svo sér maður bara ekki með neitt skýrum hætti lengra fram í tímann.“

Haraldur segir kalda loftið yfir landinu komið frá Grænlandi og Kanada þar sem mikill hafís er um þessar mundir og sjórinn kaldur.

„Þannig að þó að sólin sé orðin mjög sterk þá dugir það ekki alveg. Það tekur langan tíma að hita sjóinn og bræða ísinn.“


Tengdar fréttir

Skúrir og slydduél í kortunum

Það er spáð skúrum eða éljum, einkum suðvestan- og vestan lands í dag og rigningu eða slyddu norðaustan til annars þurru veðri, samkvæmt veðurspá Veðurstofu Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×