Íslenski boltinn

KR valtaði yfir Aftureldingu

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
KR-ingar fagna.
KR-ingar fagna. vísir/andri marinó
KR er komið örugglega áfram í Mjólkurbikar karla eftir stórsigur á Aftureldingu í Mosfellsbæ í dag. KA tryggði sér sigur á Haukum og Þór sigraði HK á Akureyri.

Mosfellingar fengu óskabyrjun þegar Andri Freyr Jónasson skoraði strax á fyrstu mínútu eftir fyrirgjöf nafna síns Andra Más Hermannssonar. Gestirnir úr Vesturbænum voru þó ekki lengi að komast inn í leikinn og tvö mörk á þriggja mínútna kafla um miðjan fyrri hálfleik breyttu stöðunni þeim í vil.

Aron Bjarki Jósepsson kom KR í 3-1 á 43. mínútu og þannig var staðan þegar gengið var til búningsherbergja. Í seinni hálfleiknum gekk lítið hjá Aftureldingu og Pablo Punyed og André Bjerregaard komu gestunum í 1-5 þegar klukkutími var liðinn af leiknum og úrslitin orðin ráðin.

Bjerregaard bætti við öðru marki sínu á 84. mínútu og Björgvin Stefánsson skoraði sjöunda mark KR á næst síðustu mínútu venjulegs leiktíma. Lokatölur 1-7 og KR komið í 16-liða úrslitin.

Í Boganum á Akureyri komu heimamenn í Þór sér í þægilega stöðu með tveimur mörkum frá Guðna Sigþórssyni og Ármanni Pétri Ævarssyni í fyrri hálfleik. Alvaro Montejo, sem átti frábæran leik í liði Þórs, skoraði svo beint úr aukaspyrnu í upphafi seinni hálfleiks.

Leikmenn Þórs voru ekki í miklum vandræðum í varnarleiknum og leit allt út fyrir nokkuð öruggan sigur Þórs í þessum slag Inkasso liðanna en loka mínúturnar urðu heldur betur spennandi.

Arian Ari Morina skoraði fyrir HK á 85. mínútu með föstu skoti og Bjarni Gunnarsson skoraði úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Bjarni var svo næstum sloppinn einn á móti markmanni og hefði getað jafnað leikinn en Þór náði að hreinsa frá og komast í skyndisókn. Þar braut Arnar Freyr Ólafsson á Alvaro og fékk beint rautt spjald áður en Sigurður Hjörtur Þrastarson flautaði leikinn af.

KA sigraði Hauka á Ásvöllum með tveimur mörkum gegn einu. Gestirnir frá Akureyri voru sterkari í fyrri hálfleik og skoraði Elfar Árni Aðalsteinsson eftir 21. mínútu með skalla.

Heimamenn í Haukum komu hins vegar ferskari út úr hálfleiknum og Daði Snær Ingason skoraði jöfnunarmarkið á 72. mínútu þegar hann fylgdi eftir skoti Arnars Aðalgeirssonar.

Aleksandar Trninic tryggði hins vegar KA sigurinn á 81. mínútu með marki úr hornspyrnu. Fleiri urðu mörkin ekki í leiknum og 2-1 sigur KA niðurstaðan.

Framlengja þurfti leik Kára og Hattar, sem bæði spila í 2. deild, því markalaust var eftir 90. mínútur. Það dró hins vegar til tíðinda í framlengingunni því Jón Vilhelm Ákason skoraði eftir aðiens tvær mínútur og kom Kára yfir. Stuttu seinna jafnaði Sæbjörn Guðlaugsson fyrir Hött áður en flóðgáttirnar opnuðust og Káramenn settu þrjú mörk á fjórum mínútum.

Ragnar Már Lárusson kom Kára aftur yfir á 101. mínútu. Jón Vilhelm bætti við öðru marki sínu á 102. mínútu og Ragnar skoraði fjórða mark Kára á 104. mínútu. Staðan orðin 4-1 þegar flautað var til hálfleiks í framlengingunni.

Halldór Bjarki Guðmundsson klóraði í bakkann fyrir Hött með marki á 111. mínútu en það dugaði ekki til og Alexander Már Þorláksson kláraði leikinn fyrir Kára með fimmta markinu á loka mínútu framlengingarinnar.

Upplýsingar um úrslit og markaskorara voru fengnar frá Fótbolta.net og Úrslit.net.

Fréttin hefur verið uppfærð eftir að framlengingu Kára og Hattar lauk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×