Sport

Kýldi sjálfan sig í andlitið | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ken Giles er skapstór.
Ken Giles er skapstór. vísir/getty
Keppnisskap manna er mismikið og allur gangur á því hvernig menn taka á mótlæti. Við erum þó alltaf að sjá nýjar útgáfur.

Hafnaboltakastarinn Ken Giles hjá Houston Astros var mjög ósáttur við sjálfan sig eftir að hafa kastað lélegum bolta sem endaði með því að hitt liðið skoraði þrjú stig.





Hann vildi eðlilega ekki kenna neinum um nema sjálfum sér og brást við með því að kýla sjálfan sig í andlitið. Það sjáum við ekki á hverjum degi.

NY Yankees vann leikinn 4-0 og það var ekki bara Giles að kenna því félagar hans gátu ekki skorað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×