Fótbolti

Sjáðu markið sem skaut Arsenal úr keppni og dramatíkina í Austurríki

Anton Ingi Leifsson skrifar
Arsene Wenger stýrði Arsenal í hinsta sinn í Evrópukeppni er liðið tapaði með einu marki gegn engu fyrir Atletico Madrid á útivelli í Evrópudeildinni í kvöld.

Tapið gerði það að verkum að Arsenal er úr leik í Evrópudeildinni þetta árið en liðin gerðu 1-1 í fyrri leiknum. Samtals 2-1 fyrir Atletico og Wenger kveður með engum titli.

Í hinum leiknum gerði Salzburg allt sem þeir gátu til þess að slá Marseille úr keppni eftir að hafa tapað fyrri leiknum 2-0. Salzburg komst í 2-0 og framlengja þurfti leikinn.

Marseille náði hins vegar að skora í framlengingunni, fjórum mínútum fyrir leikslok, og er þar af leiðandi komið í úrslitaleikinn gegn Atletico.

Mörkin og allt það helsta úr leik Arsenal og Atletico má sjá hér að ofan en allt það helsta úr spennuleik Salzburg og Marseille hér neðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×