Handbolti

Ljónin í bikarúrslitin

Dagur Lárusson skrifar
Alexander Petterson skoraði 5 mörk.
Alexander Petterson skoraði 5 mörk. vísir/getty
Guðjón Valur og Alexander Petterson komust í úrslit þýska bikarsins í dag þegar lið þeirra Rhein-Neckar Löwen bar sigur úr bítum gegn Magdeburg.

Rhein-Neckar var með forystuna nánast allan leikinn og spilaði almennt mjög vel og var staðan 16-10 í hálfleik fyrir Rhein-Neckar.

Rhein-Neckar hélt yfirburðum sínum í seinni hálfleiknum og vann að lokum sigur 31-24.

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 4 mörk á meðan Alexander Petterson skoraði 5 mörk en markahæstur í liði Rhein-Neckar var Hendrik Pekeler.

Rhein-Neckar því komið í úrslitaleikinn og mæta þar annaðhvort Hannover-Burgdorf eða HSG Wetzlar.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×