Handbolti

Aron þrefaldur meistari á sínu fyrsta tímabili

Anton Ingi Leifsson skrifar
Aron er að gera það gott á Spáni.
Aron er að gera það gott á Spáni. vísir/getty
Aron Pálmarsson skoraði sex mörk er Barcelona varð spænskur bikarmeistari eftir sjö marka sigur á La Rioja, 35-28, í dag.

Barcelona var að vinna bikarinn fimmta árið í röð en liðið vann þrennuna á tímabilinu; deildina, deildarbikarinn og nú sjálfan bikarinn.

Barcelona var 19-17 yfir í hálfleik en í síðari hálfleik bættu þeir enn meira í og unnu að lokum öruggan sigur en liðið hefur borið höfuð og herðar yfir önnur lið á Spáni í vetur eins og svo oft áður.

Aron gekk í raðir Barcelona frá Veszprém fyrr í vetur og er að komast aftur á skrið eftir meiðsli. Hann átti virkilega góðan leik í dag eins og áður segir en hann skoraði sex mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×