Enski boltinn

Özil vonast til að verða klár á HM

Anton Ingi Leifsson skrifar
Özil þakkaði Wenger fyrir og vonaðist til að verða klár í sumar.
Özil þakkaði Wenger fyrir og vonaðist til að verða klár í sumar. vísir/afp
Mesut Özil, miðjumaður Arsenal og þýska landsliðsins, segir að hann verði klár í slaginn er flautað verður til leiks á HM í Rússlandi í sumar.

Miðjumaðurinn knái lék ekki með Arsenal í 5-0 sigri liðsins í kveðjuleik Wenger gegn Burnley á heimavelli. Özil verður væntanlega ekki heldur með um næstu helgi er liðið spilar gegn Huddersfield.

„Það er vont að ég missti af leiknum í gær vegna bakmeiðsla minna. Ég þarf tíma en ég er viss um að ég verði klár í slaginn fyrir HM,” sagði hann á Twitter-síðu sinni er stuðningsmaður þýska landsliðsins spurði hann út í meiðslin.

Þýska liðið á titil að verja á HM en Özil notaði tækifærið í gær og þakkaði Arsene Wenger fyrir að hafa fengið að spila undir hans stjórn.

„Enn einu sinni langar mig að þakka þér stjóri. Það var heiður að spila undir þinni stjórn. Takk fyrir allar stundirnar sem við deildum saman.”




Fleiri fréttir

Sjá meira


×