Fótbolti

Roberto dæmdur í fjögurra leikja bann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Roberto var mjög hissa er hann fékk rauða spjaldið eins og sjá má.
Roberto var mjög hissa er hann fékk rauða spjaldið eins og sjá má. vísir/getty
Spænska knattspyrnusambandið tók hart á broti Sergi Roberto, leikmanni Barcelona, í leiknum gegn Real Madrid um síðustu helgi.

Roberto sló til Marcelona, leikmanns Real Madrid, og fékk fyrir það fjögurra leikja bann. Barcelona hefur þegar áfrýjað þessu langa banni.

Ef það stendur mun Roberto missa af síðustu þrem leikjum tímabilsins sem og fyrri leiknum í ofurbikarnum næsta haust.

Roberto var einnig sektaður um tæpar 400 þúsund krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×