Körfubolti

Betur fór en á horfðist hjá Durant

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Durant liggur hér á gólfinu eftir að hafa snúið sig í leiknum.
Durant liggur hér á gólfinu eftir að hafa snúið sig í leiknum. vísir/getty
Það fór um marga stuðningsmenn Golden State Warriors síðustu nótt er Kevin Durant snéri sig á ökkla og haltraði af velli.

„Ég er í góðu lagi. Þetta er ekki neitt. Þetta var ekki fullur snúningar á ökklanum og ég verð í lagi,“ sagði Durant eftir leikinn.

Durant var búinn að fara á kostum í leiknum áður en hann meiddist. Shaun Livingston snéri sig einnig á ökkla í leiknum en slapp vel eins og Durant.

Warriors er þegar án Steph Curry og hefði það verið afar slæmt fyrir liðið að missa Durant einnig í meiðsli.

Warriors er annars yfir, 3-0, í rimmunni gegn San Antonio í úrslitakeppni NBA-deildarinnar og getur sópað Spurs í frí í næsta leik.



NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×