Körfubolti

Gummi Jóns og Reggie Dupree áfram með Keflavík

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Guðmundur Jónsson var fyrirliði Keflavíkur á síðasta tímabili
Guðmundur Jónsson var fyrirliði Keflavíkur á síðasta tímabili Vísir/Bára
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur færði stuðningsmönnum sínum sumargjöf í dag þegar tilkynnt var um endurnýjun á samningum við tvo lykilmenn.

Þeir Guðmundur Jónsson og Reggie Dupree hafa skrifað undir nýja samninga við Keflavík og munu leika með liðinu á næsta tímabili.

„Verði ykkur að góðu,“ sagði í tilkynningu Keflavíkur en báðir spiluðu stórt hlutverk í liði Suðurnesjamanna á nýliðnu tímabili.

Guðmundur var með 9,4 stig að meðaltali í þeim 27 leikjum sem hann spilaði fyrir Keflavík og 3,6 fráköst. Reggie setti 9,3 stig í 21 leik og gaf 3 stoðsendingar.

Keflavík endaði í 8. sæti Domino's deildarinnar en náði að knýja fram oddaleik gegn deildarmeisturum Hauka í 8-liða úrslitunum þar sem þeir báðu ósigur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×