Handbolti

Viggó markahæstur í jafntefli gegn toppliðinu

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Viggó í leik með Gróttu á síðasta tímabili
Viggó í leik með Gróttu á síðasta tímabili vísir/ernir
Viggó Kristjánsson var markahæstur í liði Westwien sem gerði jafntefli við Alpla á heimavelli í austurrísku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Viggó skoraði sjö af 25 mörkum Westwien, þar af þrjú af vítalínunni. Gestirnir frá Alpla, sem eru á toppi deildarinnar, leiddu leikinn með þremur mörkum þegar liðin gengu til búningsherbergja, 10-13, og voru með fjögurra marka forystu þegar aðeins þrjár mínútur voru eftir af leiknum, 21-25.

Fleiri mörk fengu gestirnir hins vegar ekki að skora og Íslendingarnir í liði Westwien, Viggó og Ólafur Bjarki Ragnarsson skoruðu næstu þrjú mörk áður en Matthias Führer jafnaði af vítalínunni, lokatölur 25-25.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×