Fótbolti

Tíu marka sigur Fram

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Framarar fagnar marki síðasta sumar
Framarar fagnar marki síðasta sumar Vísir/Andri Marinó
Fram er komið í 32-liða úrslit Mjólkurbikars karla eftir tíu marka sigur á GG á Framvelli í dag.

Guðmundur Magnússon skoraði þrennu fyrir Fram, og Helgi Guðjónsson og Orri Gunnarsson áttu tvö mörk hvor í 10-0 sigri.

Reynir Sandgerði vann níu marka sigur á Skallagrími í Akraneshöllinni. Þar gerði Reynir Þór Valsson þrennu og Haukur Ingi Júlíusson skorað tvö mörk á sex mínútna kafla í 9-0 sigri Suðurnesjamanna.

Magni frá Grenivík mætti KF á Akureyri og fór með 5-0 sigur og þriðju deildar lið Einherja sló út Leikni frá Fáskrúðsfirði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×