Handbolti

Sjötti deildarsigur Kiel í röð

Anton Ingi Leifsson skrifar
Alfreð glaður í bragði.
Alfreð glaður í bragði. vísir/afp
Alfreð Gíslason og lærisveinar hans unnu sinn sjötta leik í röð í þýsku úrvalsdeildinni er liðið fór létt með SC Leipzig, 28-16, á útivelli í kvöld.

Með sigrinum er Kiel með jafn mörg stig og Fuchse Berlín en liðin eru í fjórða til fimmta sæti deildarinnar. Kiel vann einmitt innbyrðisleik liðanna í síðustu viku.

Kiel lagði grunninn að sigrinum í fyrri hálfleik. Eftir fyrri hálfleikinn var Kiel sex mörkum yfir, 14-8, og eftirleikurinn var nokkuð auðveldur. Lokatölur tólf marka sigur, 28-16.

Nikola Bilyk skoraði sex mörk fyrir Kiel og var markahæstur en Lukas Nilsson og Ole Rahmel komu næstir með fimm. Philipp Weber skoraði sjö fyrir Leipzig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×