Handbolti

PSG fyrsta liðið í undanúrslit Meistaradeildarinnar

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Nedim Remili var atkvæðamestur í dag
Nedim Remili var atkvæðamestur í dag vísir/getty
PSG er komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í handbolta eftir þriggja marka sigur sigur á Kielce í París í dag. Franska ofurliðið er þar með fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum en hinum einvígunum í 8-liða úrslitunum lýkur á morgun.

PSG stóð vel að vígi fyrir leik dagsins eftir að hafa unnið öruggan sex marka sigur í Póllandi í fyrri leik liðanna.

Þeim urðu ekki á nein mistök í dag og unnu að lokum þriggja marka sigur, 35-32, eftir að hafa leitt með tveimur mörkum í leikhléi. Nedim Remili fór mikinn og var markahæstur með níu mörk en næstur kom Jesper Nielsen með fimm mörk.

Alex Dujshebaev var markahæstur gestanna með fimm mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×