Formúla 1

Lewis Hamilton kominn á toppinn eftir dramatískan sigur

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Lewis Hamilton.
Lewis Hamilton. Vísir/Getty
Heimsmeistarinn Lewis Hamilton kom, sá og sigraði í fjórða kappakstri tímabilsins í Formúla 1 sem fram fór í Bakú, höfuðborg Aserbaísjan, í dag.

Lokakaflinn var æsispennandi þar sem Daniel Ricciardo og Max Verstappen, samherjar hjá Red Bull, rákust saman og féllu báðir úr leik. Afskaplega svekkjandi fyrir Red Bull sem ætlar sér að berjast um titilinn í ár.

Í kjölfarið tók við mikil keppni milli Mercedes ökumannanna Hamilton og Valtteri Bottas gegn ökumönnum Ferrari, þeim Sebastian Vettel og Kimi Raikkonen. Vettel og Bottas lentu báðir í hremmingum þegar þrír hringir voru eftir og fór að lokum svo að Hamilton stóð uppi sem sigurvegari.

Raikkonen hafnaði í öðru sæti og þriðji varð Sergio Perez.

Hamilton hefur aldrei komist á verðlaunapall áður í Bakú og er þetta jafnframt fyrsti sigur Bretans á þessu keppnistímabili. Hann fleytir honum engu að síður upp í toppsætið í stigakeppni ökumanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×