Fótbolti

Fimmti deildarsigurinn í röð hjá Heimi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Heimir er að gera frábæra hluti í Færeyjum.
Heimir er að gera frábæra hluti í Færeyjum. vísir/anton
Heimir Guðjónsson heldur áfram að stýra HB til sigurs í færeysku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en í dag vann liðið 3-0 sigur á 07 Vestur á heimavelli.

Fyrrum Keflvíkingurinn, Símun Samuelsen, var á skotskónum fyrir Heimi í dag. Hann skoraði fyrsta markið og lagði upp þriðja markið en Símun er mikilvægur í liði HB.

HB er með nítján stig eftir átta leiki en liðið hefur nú unnið fimm leiki í röð. Eftir tap í fyrsta leiknum hefur liðin náð í 19 stig af 21 mögulegu.

Brynjar Hlöðversson leikur einnig með HB en HB spilar næst við AB um næstu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×