Körfubolti

NBA: Þrjú lið tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni í nótt og aðeins eitt sæti er laust

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Russell Westbrook.
Russell Westbrook. Vísir/Getty
Lið New Orleans Pelicans, San Antonio Spurs og Oklahoma City Thunder tryggðu sér öll sæti í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta með sigurleikjum í nótt en nú á aðeins eftir að fylla eitt sæti.

Paul George skoraði 27 stig og Russell Westbrook náði 25. þrennunni sinni á tímabilnu þegar Oklahoma City Thunder tryggði sér sæti í úrslitakeppni Vesturdeildarinnar með 115-93 sigri á Miami Heat. Westbrook endaði leikinn með 23 stig, 18 fráköst og 13 stoðsendingar.

Thunder-liðið lenti átján stigum undir á upphafsmínútum leiksins en snéri við blaðinu og vann síðan lokaleikhlutann 39-12. Miami Heat hefur aldrei áður tapað leikhluta með 27 stigum.

Jerami Grant var með 17 stig fyrir OKC og Carmelo Anthony bætti við 11 stigum. Josh Richardson skoraði mest fyrir Miami eða 18 stig en Miami liðið var þegar búið að tryggja sér sæti í úrslitakeppni Austurdeildarinnar.





Rudy Gay skoraði 18 stig og Manu Ginobili var með 17 stig þegar San Antonio Spurs vann 98-85 sigur á Sacramento Kings og tryggði sér sæti í úrslitakeppninni 21. árið í röð. Gay, Ginobili og Bryn Forbes komu allir inn af bekknum og voru saman með 25 stig í fjórða og síðasta leikhlutanum sem Spurs vann 38-19.

Anthony Davis skoraði 28 stig og Nikola Mirotic var með 24 stig og 16 fráköst þegar New Orleans Pelicans tryggði sér sæti í úrslitakeppninni með 113-100 útisigri á Los Angeles Clippers. Þetta var fjórði sigur Pelíkananna í röð og með honum er liðið búið að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni. 

Minnesota Timberwolves og Denver Nuggets berjast um áttunda og síðasta sætið inn í úrslitakeppni Vesturdeildarinnar. Bæði unnu leiki sína í nótt og þau mætast síðan á lokadegi deildarkeppninnar.

Nikola Jokic var með tíundu þrennu sína á tímabilinu, 15 stig, 20 fráköst og 11 stoðsendingar þegar Denver Nuggets vann 88-82 sigur á Portland Trail Blazers en þetta var sjötti sigur Denver-liðsins í röð og liðið hefur þurft á þeim öllum að halda til að halda voninni um sæti í úrslitakeppninni á lífi.

Karl-Anthony Towns var með 24 stig og 18 fráköst þegar Minnesota Timberwolves vann 113-94 sigur á Memphis Grizzlies. Jeff Teague var einnig með 24 stig og Jimmy Butler skoraði 15 stig.





LeBron James var með 26 stig og 11 stoðsendingar í 50. sigri Cleveland Cavaliers á tímabilinu en liðið vann þá 123-109 sigur á New York Knicks í Madison Square Garden. Kevin Love var með 28 stig fyrir Cavs liðið sem á enn smá möguleika á því að taka þriðja sætið af Philadelphia 76 ers. Þetta var sjötti sigur liðsins í síðustu sjö leikjum.

Úrslitin í NBA-deildinni í nótt:

Los Angeles Clippers - New Orleans Pelicans    100-113    

Denver Nuggets - Portland Trail Blazers    88-82    

San Antonio Spurs - Sacramento Kings    98-85    

Milwaukee Bucks - Orlando Magic    102-86    

Minnesota Timberwolves - Memphis Grizzlies    113-94    

Brooklyn Nets - Chicago Bulls    114-105    

Miami Heat - Oklahoma City Thunder    93-115    

New York Knicks - Cleveland Cavaliers    109-123    

Detroit Pistons - Toronto Raptors    98-108



 

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×