Enski boltinn

Klopp varar við „þrumum og eldingum“ frá Manchester City í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool.
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool. Vísir/Getty
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, varaði sína leikmenn við því að það sé bara hálfleikur á móti Manchester City í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar og það sé von á „þrumuveðri“ frá liði Manchester City í kvöld.

Manchester City tekur á móti Liverpool í kvöld og í boði er sæti í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

Liverpool vann fyrri leikinn 3-0 og er í frábærri stöðu en Klopp sá Manchester City liðið komast í 2-0 í fyrri hálfleik á móti Manchester United um helgina. Hann segir að sú frammistaða City-manna vera viðvörun til leikmanna Liverpool fyrir leikinn í kvöld.

„Ég sá leik City og United um helgina. Þetta var einn besti fyrri hálfleikur hjá liði sem ég hef séð. Þetta var eins og þrumuveður,“ sagði Jürgen Klopp. Sky Sports segir frá.

„Eftir fyrsta mark United í seinni hálfleik, þá nær annað liðið taktinum en hitt liðið missir taktinn. Leikurinn breyttist,“ sagði Klopp.

„Ég get ekki sagt við mína stráka: Skoriði snemma. Jú, ég get það en ég veit ekki hversu mikið það hjálpar þeim,“ sagði Klopp en ef Liverpool skorar þá þarf City að skora fimm mörk til að komast áfram.

„Við verðum að hugsa um fótboltann, hvað við þurfum að gera og hvað við verðum að gera. Strákarnir vissu eftir fyrri leikinn að það væri bara hálfleikur. Við erum með forystuna en ekkert meira en það,“ sagði Klopp.





Klopp hefur unnið sjö af þrettán leikjum sínum á móti Pep Guardiola eða fleiri en nokkur annar stjóri.

„Við mætum með því hugarfari að fá ekki á nokkur mark og síðan skora sjálfir mark til að vinna leikinn. Það er planið. Ef við fáum á okkur mark þá gerist ekkert við það því við værum enn yfir,“ sagði Klopp.

„Þetta snýst um að gera hlutina rétt, verjast þeim á réttum stöðum og sækja á þá á réttum stöðum,“ sagði Klopp.





Liverpool er búið að tapa 5-0 fyrir Manchester City á Ethiad leikvanginum á þessu tímabili.

„Það var öðruvísi. Nú höfum við verið lengur saman. Hlutirnir eru betri hjá okkur en sá leikur sýnir okkur samt hvað getur gerst,“ sagði Klopp.

Leikur Manchester City og Liverpool hefst klukkan 18.45 í kvöld og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×