Enski boltinn

Dele Alli ekki nálægt hópi þeirra bestu á afmælisdaginn

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Dele Alli er frábær en ekki jafnduglegur að skapa mörk og sumir voru áður.
Dele Alli er frábær en ekki jafnduglegur að skapa mörk og sumir voru áður. Vísir/Getty
Dele Alli, miðjumaður Tottenham og enska landsliðsins í fótbolta, fagnar 22 ára afmælisdegi sínum í dag.

Þessi magnaði leikmaður sem Tottenham keypti fyrir aðeins fimm milljónir punda frá MK Dons fyrir þremur árum síðan er mögulega besti ungi leikmaður Englands í dag, en hvar stendur hann þegar kemur að markaskorun samanborið við aðra leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar þegar að þeir voru 22 ára?

Þetta er spurning sem Sky Sports svarar með ítarlegri grein á vef sínum í dag en Alli hefur verið duglegur að skora og leggja upp mörk frá því hann kom í úrvalsdeildina.Englendingurinn var magnaður á síðustu leiktíð og skoraði 18 mörk og lagði upp önnur níu. Á þessu tímabili hefur hann aðeins dalað og skorað átta mörk og gefið ellefu stoðsendingar í 31 leik.

Wayne Rooney skoraði grimmt og lagði upp áður en að hann varð 22 ára.vísir/getty

Fowler efstur

Frammistaða hans undanfarið varð til þess að Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, tók hann úr byrjunarliðinu, en þrátt fyrir smá bras þessa dagana vita Englendingar alveg hvað þeir eru með í höndunum.

Þegar Alli er borinn saman við aðra leikmenn í ensku úrvalsdeildinni sést bersýnilega að hann er langt frá því að vera sá besti eða í hóp þeirra allra bestu þegar kemur að því að skora og leggja upp mörk.

Hann er í sjötta sæti á „22 ára-listanum“ með 36 mörk og 26 stoðsendingar eða 62 mörk sköpuð í ensku úrvalsdeildinni áður en hann varð 22 ára gamall. Cesc Fábregas er sæti ofar með 63 mörk sköpuð og Chris Sutton er þar fyrir ofan með 68.

Svo er langt í næstu menn en Robbie Fowler trónir á toppi listans með 97 mörk, þar af skorað hann 82 sjálfur. Michael Owen er í öðru sæti með 94 mörk en þar af skoraði hann 73 sjálfur. Þeir vissulega framherjar og Alli á miðjunni.

Wayne Rooney er svo í þriðja sæti en hann skoraði 59 mörk og lagði upp 31 til viðbótar og var því búinn að skapa 90 mörk áður en hann varð 22 ára gamall.

Allan listann má finna í grein Sky Sports hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×