Fótbolti

Sjáðu alla dramatíkina á Bernabeu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Það var heldur betur dramatík í Meistaradeildinni annað kvöldið í röð en annað kvöldið í röð fengum við ótrúlega endurkomu frá ítölsku liði.

Dramatíkin var í hámarki á Bernabeu þar sem Juventus skoraði þrjú mörk og leikurinn var á leið í framlengingu þangað til allt sauð upp úr í uppbótartíma.

Real fékk vítaspyrnu sem Ítalarnir voru ekki ánægðir með. Gianluigi Buffon fékk meðal annars rautt spjald og allt ætlaði um koll að keyra. Allt þetta og meira til má sjá í spilaranum efst í fréttinni.

Hér að neðan má sjá það helsta úr markalausu jafntefli Bayern Munchen og Sevilla en Bayern vann fyrri leikinn 2-1. Þjóðverjarnir eru því komnir í undanúrslit. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×