Fótbolti

Sergio Ramos mætti á hliðarlínuna í lokin og gæti verið á leið í lengra bann

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sergio Ramos.
Sergio Ramos. Vísir/Getty
Sergio Ramos, fyrirliði Real Madrid, tók út leikbann í gær þegar spænska liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

Real Madrid rétt slapp áfram þrátt fyrir 3-1 tap á heimavelli sínum á móti Juventus en Real hafði unnið fyrri leikinn 3-0 á Ítalíu.

Juventus skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik og náði síðan þriðja markinu inn í seinni hálfleiknum. Það stefndi í framlengingu þegar Real fékk víti sem Cristiano Ronaldo nýtti og kom Real í undanúrslitin.





Ramos var hinsvegar mættur á hliðarlínuna undir lok leiksins og var strangt til tekið að hafa áhrif á leik sem hann mátti ekki koma nálægt.

Ramos ræddi meðal annars umdeildan vítaspyrnudóm við Massimiliano Allegri, þjálfara Juventus.

Real Madrid var búið að vinna fjóra leiki í röð í Meistaradeildinni með Sergio Ramos í vörninni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×