Innlent

Eldri maður féll af hjóli og lést

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Maðurinn er sagður hafa átt sér veikindasögu.
Maðurinn er sagður hafa átt sér veikindasögu. Vísir
Maður á sjötugsaldri lést þegar hann féll á reiðhjóli sínu við Hringbraut í Hafnarfirði í gær klukkan hálf sjö.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Hafnarfirði var maðurinn fluttur á Landspítala og úrskurðaður látinn þar við komuna en hann komst aldrei til meðvitundar eftir fallið.

Ekki var um árekstur eða umferðarslys að ræða. Maðurinn átti sögu um veikindi en krufning á að leiða í ljós hver dánarorsök hans var.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×