Körfubolti

Darri: Við þökkum Ívari fyrir það

Árni Jóhannsson skrifar
Darri er að spila sína síðustu leiktíð með KR, í bili allavega. Hann hyggst flytja til Svíþjóðar.
Darri er að spila sína síðustu leiktíð með KR, í bili allavega. Hann hyggst flytja til Svíþjóðar. vísir/eyþór
Darri Hilmarsson hafði kannski hægt um sig í stigaskori fyrir sína menn en hann hjálpaði þeim á öðrum sviðum körfuboltans þegar KR tryggði sér farseðilinn í úrslita einvígi Dominos deildarinnar í körfubolta í fimmta árið í röð.

Hann spilaði sinn 400. leik í kvöld og var spurður hvernig tilfinningin væri svona strax eftir leik.

„Hún er góð, mjög góð. Haukar eru búnir að vera besta liðið í vetur þannig að það er gott að ná að slá þá út 3-1. Mér fannst við eiga það skilið.”

Hann var spurður hvað væri að skila KR í úrslitaeinvígið og talaði hann mest um varnarleik liðsins.

„Við skiptum aðeins um varnarafbrigði í leik þrjú og mér fannst þeir ekki eiga nógu góð svör við þeim varnarleik. Fórum í svokallaðan Box og 1 þar sem Björn Kristjánsson elti Kára Jónsson allan tímann og við hinir spiluðum svæðisvörn og þeir náðu ekki að leysa það nógu vel.Við vorum komnir með tak á þá með því að spila mikið betur í leik þrjú og fjögur en í fyrstu tveimur leikjunum“.

„Sigurinn í öðrum leik hafði þau áhrif, eins og einhver sagði við mig, hann snýr seríunni við. Skriðþunginn kemur yfir til okkar og við sleppum honum ekki þegar við erum komnir með hann“, sagði Darri þegar hann var spurður um það hvort kraftaverkasigurinn í leik tvö hefði ekki haft góð áhrif á liðið.

Í framhaldi af því var hann spurður út í ummæli Ívars Ásgrímssonar eftir þann leik um að Haukar væru betra liðið og að KR vissi af því.

„Þetta mótiveraði okkur klárlega. Maður áttaði sig ekki alveg á því hvað hann var að reyna að tala á móti fjórföldum meisturum ef ég les þetta alveg rétt. Við spiluðum ekki alveg nógu góða fyrstu tvo leikina þannig að þetta kveikti á okkur. Við þökkum bara Ívari fyrir það.”




Fleiri fréttir

Sjá meira


×