Fótbolti

Zlatan skoraði í fyrsta byrjunarliðsleiknum

Einar Sigurvinsson skrifar
Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic. vísir/getty
Zlatan Ibrahimovic var í byrjunarliði LA Galaxy í fyrsta sinn þegar liðið sigraði Chicago Fire í gær. Leiknum lauk með 1-0 sigri Galaxy og skoraði Zlatan eina mark leiksins.

„Ég hefði getað skorað tvö mörk til viðbótar. Ég klúðraði tveimur góðum færum sem ég gerist venjulega ekki,“ sagði Zlatan í leikslok.

Eftir sigurinn í gær fer LA Galaxy í 2. sæti MLS-deildarinnar með 10 stig, þremur stigum frá Sporting Kansas City í toppsætinu.

Zlatan hefur byrjað vel í bandarísku deildinni en hann er búinn að skora þrjú mörk í fyrstu þremur leikjum sínum fyrir Los Angeles liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×