Lífið

Féll í yfirlið þegar hann var kominn í 3,7 g

Stefán Árni Pálsson skrifar
Augnablik þegar líður yfir Scott.
Augnablik þegar líður yfir Scott.
Tom Scott skellti sér í konunglegu flugæfingarstöðina í Bretlandi á dögunum en hún er staðsett í Farnborough.

Scott skellti sér í sérstakt æfingartæki sem ætlað er til að æfa flugmenn til að takast á við þyngdarkraftinn sem slíkri hröðun.

Scott féll í yfirlið þegar hann var kominn í 3,7 sinnum þyngdarkrafti (g) jarðar og er í raun með ólíkindum að fylgjast með myndbandi af tilrauninni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×