Enski boltinn

Sjáðu nýja Liverpool búninginn

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Leikmenn Liverpool frumsýna nýju treyjuna
Leikmenn Liverpool frumsýna nýju treyjuna mynd/liverpool
Liverpool frumsýndi í dag búninginn sem liðið mun leika heimaleiki sína í á næsta tímabili.

Félagið er strax búið að setja treyjuna í sölu og er hún áfram framleidd af bandaríska íþróttavöruframleiðandanum New Balance.

Útlitið á búningnum er í svokölluðum „retró“ stíl, líkt og þetta tímabil. Fáar breytingar eru á þessari treyju frá þeirri sem liðið spilar í á núverandi tímabili, sú helsta er að á nýju treyjunni er hnepptur kragi.

Innan á treyjunni er talan 96 til minningar þeirra 96 stuðningsmanna sem létust á Hillsborough leikvanginum þann 15. apríl 1989.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×