Handbolti

Sjö íslensk mörk í Þýskalandi

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Guðjón skoraði fjögur mörk í kvöld.
Guðjón skoraði fjögur mörk í kvöld. vísir/getty
Alfreð Gíslason hafði betur gegn Bjarka Má Elíssyni og félögum í Füchse Berlin í þýsku Bundesligunni í handbolta í kvöld.

Alfreð stýrði sínum mönnum í Kiel til 25-20 sigurs eftir að hafa verið 15-8 yfir í hálfleik. Bjarki Már átti þrjú mörk í leiknum fyrir Füchse Berlin.

Guðjón Valur Sigurðsson setti fjögur mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen sem vann þriggja marka sigur á Hannover-Burgdorf, 23-26. Alexander Petersson komst ekki á blað í liði Ljónanna.

Rúnar Kárason var ekki í leikmannahóp Hannover-Burgdorf.

Rhein-Neckar er á toppi deildarinnar með 50 stig eftir 29 leiki. Füchse Berlin er með 43 í þriðja sæti en Kiel jafnaði þá að stigum með sigrinum í dag. Hannover-Burgdorf er í sjötta sæti með 41 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×