Enski boltinn

Aron Einar spilaði 90 mínútur í jafntefli

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Aron Einar Gunnarsson.
Aron Einar Gunnarsson. vísir/getty
Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson var mættur í byrjunarlið Cardiff í kvöld þegar liðið heimsótti Sheffield United í ensku B-deildinni.

Aron Einar hefur glímt við meiðsli undanfarna mánuði en þetta var fyrsti leikur hans í byrjunarliði Cardiff síðan í nóvember.

Heimamenn komust yfir með marki Leon Clarke eftir tæplega hálftíma leik og höfðu þeir forystu allt þar til í uppbótartíma venjulegs leiktíma þegar Anthony Pilkington jafnaði metin fyrir Cardiff. Aron Einar lék allan leikinn.

Cardiff er í góðum málum í 2.sæti deildarinnar með átta stigum meira en næsta lið þegar sjö umferðir eru eftir af mótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×