Sport

Khabib nýr léttvigtarmeistari UFC

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Khabib er nýr léttvigtarmeistari UFC.
Khabib er nýr léttvigtarmeistari UFC. Vísir/Getty
Khabib Nurmagomedov er nýr léttvigtarmeistari UFC eftir sigur á Al Iaquinta í nótt. Þar með hefur Conor McGregor formlega verið sviptur léttvigtartitli sínum.

Fyrir helgina var Conor McGregor ríkjandi léttvigtarmeistari og Tony Ferguson bráðabirgðarmeistari í léttvigt. Eftir sigur Khabib á UFC 223 í nótt hafa þeir báðir verið sviptur sínum titlum. Khabib er því eini titilhafinn í léttvigt UFC í dag.

Khabib mætti Al Iaquinta í aðalbardaga kvöldsins en Khabib fékk þrjá mismunandi andstæðinga í vikunni. Upphaflega átti Khabib að mæta Tony Ferguson en þegar hann meiddist kom Max Holloway í hans stað. Holloway gat hins vegar ekki náð léttvigtarmörkunum í vigtuninni og kom Al Iaquinta því inn með rúmlega sólarhrings fyrirvara.

Khabib byrjaði bardagann vel og náði Iaquinta fljótt niður. Fyrstu tvær loturnar voru naut Khabib mikilla yfirburða og var bardaginn nokkuð einhliða. Í 3. og 4. lotu stóð Khabib hins vegar allan tímann með Iaquinta sem er nokkuð sem við höfum ekki mikið séð hann gera í UFC. Khabib vann þó allar loturnar örugglega og kláraði 5. lotuna í góðri stöðu í gólfinu.

Sigurinn var aldrei í vafa en Khabib vann allar fimm loturnar. Hann er þar með nýr léttvigtarmeistari UFC og spurning hvern hann fær í sinni fyrstu titilvörn.

Rose Namajunas varði strávigtartitil sinn er hún sigraði fyrrum meistarann Joanna Jedrzejczyk eftir dómaraákvörðun. Joanna átti í erfiðleikum til að byrja með en komst betur inn í bardagann í 3. og 4. lotu. Namajunas innsiglaði svo sigurinn með góðri frammistöðu í 5. lotu en að mati dómara tók Namajunas fjórar af fimm lotunum.

Eftir ótrúlega viku var bardagakvöldið ekki það besta sem UFC hefur boðið upp á en þó ágætis skemmtun. UFC bardagasamtökin eru þó eflaust fegin því að vikunni sé lokið eftir annasama daga. Öll önnur úrslit kvöldsins má nálgast á vef MMA Frétta hér.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×