Fótbolti

Strákarnir hans Lars kláruðu Ástralíu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Lagerback sá sína menn vinna góðan sigur íkvöld.
Lagerback sá sína menn vinna góðan sigur íkvöld. vísir/getty
Lars Lagerback og lærisveinar hans í norska landsliðinu unnu 4-1 sigur á Ástralíu í vináttuleik í Noregi í kvöld. Leikið var á Ullevaal í Osló.

Jackson Irvine kom Áströum yfir á nítjándu mínútu en Ástralía er á leiðinni á HM í Rúslsandi þetta sumar en Noregur ekki. Ola Kamara, framherji LA Galaxy, jafnaði fyrir hlé.

Tore Reginiussen kom Norðmönnum yfir í upphafi síðari hálfleiks áður en Kamara skoraði annað mark sitt og þriðja mark Noregs eftir tæpan klukkutíma. Kamara fullkomnaði svo þrennuna í uppbótartíma.

Norðmenn mæta Albaníu í öðrum æfingarleik á mánudag en Ástralía spilar við Kólumbíu á þriðjudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×