Fótbolti

Lars Lagerbäck: Ég er pirraður

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lars Lagerbäck.
Lars Lagerbäck. Vísir/Getty
Lars Lagerbäck er kominn til Tirana í Albaníu þar sem hann stýrði íslenska landsliðinu til sigurs í undankeppni HM 2014 fyrir rúmum fimm árum. Að þessu sinni er hann mættur með norska landsliðið sitt í vináttulandsleik.

Íslenska landsliðið vann 2-1 sigur á Albaníu í umræddum leik þar sem Birkir Bjarnason og Gylfi Þór Sigurðsson skoruðu mörkin.

Í þessum leik var líka eini „skandallinn“ í þjálfaratíð Lars Lagerbäck með íslenska landsliðið en hann ákvað þá að taka ekki fyrirliðabandið af Aroni Einari Gunnarssyni þrátt fyrir ljót orð hans um albönsku þjóðina.

Norska landsliðið vann 4-1 sigur á Ástralíu í vináttulandsleik á dögunum en er nú komin á útivöll þar sem lítið hefur gengið síðan að Lars Lagerbäck tók við norska liðinu.

Norðmenn hafa aðeins unnið einn af fimm útileikjum sínum undir stjórn Lars Lagerbäck og sá sigur kom á móti San Marinó sem telst seint til mikilla afreka. Leikirnir á móti Norður-Írlandi, Þýskalandi, Makedóníu og Slóvakíu hafa allir tapast.

„Ég vil aldrei tala um heppni eða óheppni. Við höfum ekki náð góðum úrslitum í þessum útileikjum af því að við höfum ekki spilað nægilega vel,“ sagði Lars Lagerbäck.

„Ég held að þetta sé að stórum hluta andlegt. Við erum með tölfræðina og hún segir sína sögu. Ég hef sagt það í mörg ár að ég er orðinn pirraður á því að vera að spila verr á útivelli en á heimavelli. Eina ástæðan sem ég finn er að þetta sé bara í hausnum á mönnum,“ sagði Lagerbäck. Dagbladet segir frá.

Noregur og Albanía eru hlið við hlið á FIFA-listanum en Norðmenn eru sæti ofar. Það verður því fróðlegt að sjá hvernig þessi leikur gengur hjá strákunum hans Lagerbäck.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×