Körfubolti

Keflavíkurliðið með 67 prósent af sigurleikjum liðanna úr áttunda sæti frá 2005

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hörður Axel Vilhjálmsson.
Hörður Axel Vilhjálmsson. Vísr/Andri Marinó
Keflvíkingar eru komnir alla leið í oddaleik í átta liða úrslitum úrslitakeppni Domino´s deildar karla í körfubolta þrátt fyrir að hafa lent í áttunda sæti deildarkeppninnar og svo líka 2-0 undir í einvíginu.

Keflavíkurliðið er búið að vinna tvo leiki í röð á móti deildarmeisturum Hauka og er fyrsta liðið úr áttunda sæti sem kemst í oddaleik eftir að það þurfti að vinna þrjá leiki í átta liða úrslitunum.

Keflvíkingar hafa ennfremur með þessum tveimur sigurleikjum þrefaldað sigurleiki liðanna úr áttunda sæti undanfarnar þrettán úrslitakeppnir.

Þegar Keflavíkurliðið vann þriðja leikinn á Ásvöllum og minnkaði muninn í 2-1 þá var liðið úr áttunda sætinu búið að tapa 19 leikjum í röð í úrslitakeppni eða öllum leikjum síðan Haukarnir jöfnuðu metin á móti deildarmeisturum Snæfells í átta liða úrslitunum vorið 2011.

Þessi sigur Haukaliðsins var eini sigur liðs úr áttunda sæti í úrslitakeppninni frá og með árið 2006.

Haukur Óskarsson, leikmaður Hauka í dag, skoraði sextán stig í þessum leik og Emil Barja kom líka við sögu en leikurinn fór fram 21. mars 2011.

Einvígi 1 og 8 í úrslitakeppninni undanfarin tólf ár:

2018: Haukar 2-2 Keflavík {83-72, 85-82, 78-81, 72-75, ...}

2017: KR 3-0 Þór Ak.  {99-68, 81-64, 90-80}

2016: KR 3-0 Grindavík {85-67, 91-77, 83-62}

2015: KR 3-0 Grindavík {71-65, 81-77, 94-80}

2014: KR 3-0 Snæfell {98-76, 99-85, 101-84}

2013: Grindavík 2-0 Skallagrímur {103-86, 102-78}

2012: Grindavík 2-0 Njarðvík {94-67, 87-76}

2011: Snæfell 2-1 Haukar {76-67, 67-77, 87-73}

2010: KR 2-0 ÍR {98-81, 103-81}

2009: KR 2-0 Breiðablik {123-75, 102-75}

2008: Keflavík 2-0 Þór Ak. {105-79, 86-83}

2007: Njarðvík 2-0 Hamar/Selfoss {79-75, 86-60}

2006: Keflavík 2-0 Fjölnir {94-78, 87-84}




Fleiri fréttir

Sjá meira


×