Enski boltinn

Pogba ekki seldur þrátt fyrir að „hugsa bara um hárgreiðslur og skó“

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Pogba afhjúpaði nýlega nýja greiðslu þar sem hann var búinn að skipta rauða litnum yfir í bláann
Pogba afhjúpaði nýlega nýja greiðslu þar sem hann var búinn að skipta rauða litnum yfir í bláann mynd/instagramsíða Paul Pogba
Paul Pogba verður ekki seldur frá Manchester United í sumar þrátt fyrir meint ósætti á milli hans og knattspyrnustjórans Jose Mourinho.

Yahoo Sport greinir frá þessu og hefur eftir heimildarmanni að Mourinho hafi ekkert á móti Pogba, heldur sé franski landsliðsmaðurinn einfaldlega ekki nógu einbeittur á fótboltann.

„Jose líkar við leikmanninn, en hann er ekki að einbeita sér að fótbolta. Pogba er að hugsa um tónlist, hárgreiðslur og skó,“ er haft eftir heimildarmanni í greininni.

Mourinho og Didier Deschamps, landsliðsþjálfari Frakklands, eiga að hafa rætt saman um Pogba og verið sammála um að leikmaðurinn þurfi að hreinsa til í forgangsröðun sinni.

Þegar Mourinho hefur rætt mál Pogba í fjölmiðlum hefur hann alltaf farið mikinn um hæfileika hans.

„Með eins marga miðjumenn og við höfum þá getur komið upp misskilningur milli manna. Það er enginn misskilningur milli mín og Paul. Hann er miðjumaður og það er erfitt að finna efnilegri miðjumann en hann, Paul hefur allt,“ sagði Jose Mourinho í viðtali á dögunum.

Pogba tók ekki þátt í vináttulandsleik Frakklands og Kólumbíu á föstudaginn en kom inn í liðið gegn Rússum í gær og skoraði mark beint úr aukaspyrnu.

Pogba ætti að vera tilbúinn til leiks þegar Manchester United mætir Swansea á Old Trafford á laugardaginn, en spurning hvort Mourinho gefi honum traustið í byrjunarliðið á nýju.


Tengdar fréttir

Pogba getur ekki verið ánægður hjá United

Didier Deschamps, þjálfari franska landsliðsins í knattspyrnu, segir að lærisveinn hans í franska liðinu, Paul Pogba, geti ekki verið ánægður með stöðu sína hjá Manchester United þar sem hann hefur átt erfitt uppdráttar

Óvissa með framhaldið hjá Pogba

Miðjumaður Man. Utd, Paul Pogba, gat ekki spilað með liðinu gegn Liverpool um helgina vegna meiðsla og óvíst er hvort hann geti spilað í Meistaradeildinni á morgun.

Messan um Pogba: Spilar eins og unglingur í fýlu

Jose Mourinho skipti Paul Pogba af velli í leik Manchester United og Newcastle í gær eftir klukkutíma leik. Hann var ekki í byrjunarliðinu í leik gegn Huddersfield í síðustu umferð og var einnig tekinn af velli eftir klukkutíma gegn Tottenham þar á undan.

Leikmenn sem deila við Mourinho verða seldir

Leikmönnum Manchester United er hollara að halda sambandi sínu við knattspyrnustjórann Jose Mourinho góðu vilji þeir ekki eiga það á hættu að verða seldir frá félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×