Fótbolti

Englendingar vilja fá að halda næsta Evrópumót

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Holland vann EM á heimavelli síðasta sumar.
Holland vann EM á heimavelli síðasta sumar. Vísir/Getty
Enska knattspyrnusambandið mun sækjast eftir því við Knattspyrnusamband Evrópu að fá að halda Evrópumótið eftir þrjú ár.

EM kvenna fór fram í Hollandi síðasta sumar og næsta keppni fer fram sumarið 2021. Enska landsliðið komst í undanúrslitin 2017 og varð í þriðja sæti á HM 2015. Það er mikill uppgangur í kvennafótboltanum í Englandi.

Enska knattspyrnusambandið mun keppa um hnossið við Austurríki og Ungverjaland sem hafa bæði sótt um að fá að halda EM 2021. Þetta verður þrettánda Evrópukeppnin og sextán þjóðir munu komast á mótið eins og síðast.

Íslenska kvennalandsliðið hefur komist á síðustu þrjú Evrópumót sem hafa farið fram í Finnlandi (2009), Svíþjóð (2013) og Hollandi (2017). Stelpurnar okkar eru líklegar til að ná fjórða Evrópumótinu í röð haldi þær áfram á sömu braut.

UEFA mun taka ákvörðun um það í desember hvar Evrópumótið mun fara fram sumarið 2021.

England hélt EM kvenna sumarið 2005 en þá komust aðeins átta þjóðir á mótið. Það mót er líka síðasta Evrópumótið sem íslenska kvennalandsliðið missti af.

England hefur líka haldið eitt Evrópumót hjá körlunum en EM karla fór fram í Englandi sumarið 1996.

Enska knattspyrnusambandið hefur reynt að fá að halda HM karla á síðustu árum en FIFA hefur ekki orðið við því.

Fræg stund með Gazza frá EM í Englandi 1996.Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×