Fótbolti

Messi ekki með Barcelona í kvöld

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Lionel Messi fagnar marki með Barcelona.
Lionel Messi fagnar marki með Barcelona. Vísir/Getty
Lionel Messi dró sig úr leikmannahóp Ernesto Valverde fyrir leik Barcelona gegn Malaga í spænsku La Liga deildinni í fótbolta í kvöld.

Messi sagðist ekki getað tekið þátt í leiknum af persónulegum ástæðum og segja spænskir miðlar að hann hafi eignast sitt þriðja barn með eiginkonu sinni Antonella í gærkvöld og vilji sitja leikinn hjá til að vera með fjölskyldunni og nýfæddum erfingja sínum.

Barcelona situr á toppi deildarinnar með átta stiga forskot á Atletico Madrid eftir að hafa unnið toppslag þessara liða um síðustu helgi. Malaga er hins vegar á botni deildarinnar og ætti leikurinn því að vera tiltölulega auðveldur fyrir Barcelona og tilvalið fyrir Messi að spara kraftana.

Hann verður svo líklegast aftur í eldlínunni með Börsungum fyrir seinni leik liðanna í einvíginu við Chelsea í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu sem fram fer á miðvikudaginn.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×