Innlent

Margt mælir með Íslandi sem fundarstað

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Ef leitað yrði til íslenskra stjórnvalda um að hýsa mögulegan fund Bandaríkjanna og Norður-Kóreu yrði beiðninni vel tekið að sögn utanríkisráðherra. Hann segir margt mæla með Íslandi sem fundarstað. Engin beiðni um slíkt hefur þó borist.

„Við Íslendingar höfum alltaf gert það sem við getum til þess að koma á friði og hjálpa til við að leita lausna og það eru nokkur dæmi um leiðtogafundi á Íslandi eins og við þekkjum, þó að það sé orðið langt síðan," segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra.

Guðlaugur vísar þá helst til leiðtogafundarins í Höfða árið 1986 milli Ronald Reagan Bandaríkjaforseta og Mikhaíl Gorbatsjev leiðtoga Sovétríkjanna, en hann var einungis ákveðinn með tíu daga fyrirvara.

Líkt og greint var frá í síðustu viku á Donald Trump Bandaríkjaforseti að hafa samþykkt fund með Kim Jong-Un leiðtoga Norður-Kóreu en talið er að fundurinn yrði í maí. Guðlaugur segist fagna mögulegri þýðu í samskiptum ríkjanna.  „En þetta er allt mikilli óvissu háð og það er ekkert fastsett ennþá en við skulum vona það besta," segir Guðlaugur.

Engu hefur verið slegið föstu með fundarstað en nokkrir staðir hafa þó verið nefndir í fjölmiðlum, líkt og Svíþjóð þar sem Svíar hafa um árabil haldið úti sendiráði í Pyongyang. Þá hafa Sviss og Kína einnig verið í umræðunni.

Guðlaugur segir það ekki venju að ríki falist eftir því að halda slíka fundi en að beiðni um slíkt yrði tekið vel.

„Það er margt sem mælir með Íslandi sem fundarstað og það er væntanlega ástæðan fyrir því að menn hafa haldið hér fundi áður. Og svo sannarlega höfum við haldið hér stóra fundi og ráðstefnur og það hefur gengið einstaklega vel," segir Guðlaugur.

 „Stefna okkar er alltaf hin sama; ef við getum lagt okkar lóð á vogarskálarnar til að hjálpa til við að leita friðsamlegra lausna og hjálpa til við að finna lausn á deilumálum, að þá gerum við það að sjálfsögðu," segir Guðlaugur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×