Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Sautján ára hælisleitandi sem fór í fóstur hjá fjölskyldu í Bolungarvík segir stærsta drauminn að fá að vera venjulegur. Hann upplifir nú í fyrsta skipti að eiga fjölskyldu eftir fjölda ára á götunni í Marokkó og á flótta í Evrópu.

Fósturmóðir hans segir það hafa tekið lengstan tíma fyrir hann að treysta því að honum verði ekki hent út af heimilinu, en rætt verður við fósturmæðginin í fréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Þá fjöllum við um viðbrögð eftir mistök við samræmd próf níundu bekkinga í síðustu viku og kynnum okkur gönguskíðaæði á Ísafirði. Þetta og margt fleira í fréttum Stöðvar 2 í opinni dagskrá klukkan 18.30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×