Körfubolti

LeBron með eina af troðslum ársins | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kallinn kann svo sannarlega enn að troða.
Kallinn kann svo sannarlega enn að troða. vísir/getty
Það má vel vera að Cleveland tapi mikið af leikjum en það er enginn að tala um neitt annað í NBA-deildinni í morgun en troðsluna hjá LeBron James í nótt.

Cavaliers tapaði í nótt gegn Portland en troðið hjá LeBron er af mörgum talið vera eitt af hans flottari á ferlinum. Það er enn næg orka þarna og troðsluna má sjá hér að neðan með öðrum góðum tilþrifum.

James skoraði 35 stig í leiknum og tók 14 fráköst. Hann lenti þess utan í rifrildi við þjálfarann og augljóslega ekki allt alveg í himnalagi í herbúðum Cleveland.

Það þarf samt ekkert að skammast sín fyrir að tapa fyrir Portland enda var liðið að vinna sinn ellefta leik í röð.

Úrslit:

Indiana-Toronto  99-106

Atlanta-Charlotte  117-129

NY Knicks-Philadelphia  110-118

Houston-LA Clippers  101-96

Memphis-Chicago  110-111

San Antonio-New Orleans  98-93

Denver-Detroit  120-113

Utah-Phoenix  116-88

Portland-Cleveland  113-105

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×