City vann meistarana │ Fjórum sigurleikjum frá titlinum

Einar Sigurvinsson skrifar
Pep Guardiola.
Pep Guardiola. vísir/getty
Machester City hafði betur gegn Chelsea í stórleik ensku umferðarinnar þessa helgina. Leiknum lauk með 1-0 sigri City.

Eina mark leiksins kom í upphafi síðari hálfleiks þegar Bernardo Silva kom boltanum í netið eftir fyrirgjöf frá David Silva.

Yfirburður City voru miklir í leiknum en Chelsea náði engu skoti á mark andstæðinga sinna.

Lærisveinar Pep Guardiola er nú með 18 stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og þurfa aðeins fjóra sigra til að gulltryggja titilinn.

Chelsea heldur hins vegar áfram að dragast aftur úr í baráttunni um 4. sætið. Eftir að hafa tapað fjórum af síðustu fimm leikjum sínum í deildinni sitja þeir í 5. sæti deildarinnar með 53 stig, fimm stigum á eftir Tottenham í 4. sætinu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira