Handbolti

Kristianstad í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í handbolta

Einar Sigurvinsson skrifar
Ólafur Guðmundsson.
Ólafur Guðmundsson. getty
Kristianstad tryggði sér 6. sæti síns riðils og þar af leiðandi sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta með sigri á Zagreb í dag. Leiknum lauk með þriggja marka sigri Kristianstad, 24-27, en staðan í hálfleik var jöfn, 10-10.

Ólafur Guðmundsson var eini Íslendingurinn í liði Kristianstad sem komst á blað en hann skoraði fjögur mörk. Arnar Freyr og Gunnar Steinn skoruðu ekki.

Lærisveinar Aron Kristjánssonar í Álaborg hafa hins vegar lokið keppni í Meistaradeild Evrópu eftir tap fyrir Flensburg-Handewitt í dag, 31-24.

Arnór Atlason spilaði lítið fyrir lið Álaborgar og átti eitt skot sem endaði ekki í netinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×