Enski boltinn

Leið yfir Kante á æfingasvæði Chelsea

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kante í leik með Chelsea.
Kante í leik með Chelsea. vísir/getty
Leikmenn Chelsea fengu áfall á æfingu fyrir síðustu helgi er það leið yfir liðsfélaga þeirra, N'Golo Kante, eftir æfingu.

Atvikið átti sér stað á föstudag og miðað við fyrri atvik hjá knattspyrnumönnum þá óttuðust leikmenn Chelsea allt það versta.

Er Kante hafði komist til meðvitundar og læknar Chelsea höfðu hugað að honum var hann sendur um leið á sjúkrahús. Þar fór hann í allar mögulegar hjartarannsóknir en þær sýndu að ekkert alvarlegt var í gangi.

Kante ferðaðist því með liðinu í leikinn við Man. City tveimur dögum síðar. Honum leið aftur á móti ekki vel á leikdag og því var ákveðið að taka engar áhættur heldur hvíla hann.

Miðjumaðurinn öflugi æfði svo með Chelsea í gær og virkaði fullfrískur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×