Losun Bretlands hefur ekki verið minni frá lokum 19. aldar Kjartan Kjartansson skrifar 7. mars 2018 16:35 Bresk stjórnvöld stefna að því að loka kolaorkaverum fyrir árið 2025. Kolanotkun hefur dregist verulega saman síðustu árin. Vísir/AFP
Verulegur samdráttur í notkun kola er aðalástæða þess að losun gróðurhúsalofttegunda í Bretlandi hefur ekki verið minni frá árinu 1890. Alls dróst losun landsins saman um 2,6% í fyrra miðað við árið áður. Kolanotkun dróst saman um 19% í fyrra samkvæmt greiningu Carbon Brief á opinberum gögnum viðskipta-, orku- og iðnaðaráætlunarráðuneytisins. Koltvísýringslosun Bretlands er nú 38% minni en hún var árið 1990 og hefur hún ekki verið minni frá því á síðasta áratug 19. aldarinnar. Olíunotkun jókst lítillega en minna en samdrátturinn í losun frá öðru jarðefnaeldsneyti. Losun Breta hefur dregist saman á hverju ári frá árinu 2012. Breska ríkisstjórnin hefur lofað því að loka öllum kolaorkuverum fyrir árið 2025. Aðeins 5,3% af heildarorkuneyslu Breta kemur nú frá kolum. Hlutfallið var 22% árið 1995. Notkun kola hefur dregist saman á hverju ári frá árinu 2012. Í sambærilegri greiningu Carbon Brief fyrir árið 2016 kom fram að hrun í eftirspurn eftir kolum í Bretlandi væri til komið vegna ódýrara jarðgass, vaxtar í endurnýjanlegum orkugjöfum og minnkandi eftirspurnar eftir orku. Carbon Brief er loftslagsvefsíða sem fjöldi loftslagsvísindamanna tekur þátt í að ritstýra.
Loftslagsmál Mest lesið Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Innlent Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Innlent Fleiri fréttir Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sjá meira