Bayern rústaði Besiktas │ Sjáðu mörkin

Anton Ingi Leifsson skrifar
Bayern München rúllaði yfir Besiktast í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu, en þetta var fyrsti útsláttarleikur Besiktast í Meistaradeild Evrópu. Hann endaði með 5-0 tapi.

Domagoj Vida fékk að líta rauða spjaldið strax á sextándu mínútu, en hann fékk beint rautt spjald. Thomas Muller kom svo Bayern yfir rétt fyrir hlé og staðan 1-0 í hálfleik.

Í síðari hálfleik tvöfaldaði Kingsley Coman forystuna á 53. mínútu áður en Thomas Muller bætti við öðru marki sínu og þriðja marki Bayern á 66. mínútu.

Robert Lewandowski bætti svo við tveimur mörkum áður en yfir lauk, á 79. mínútu og 88. mínútu, og lokatölur 5-0 sigur Bayern sem er nánast komið áfram í átta liða úrslitin.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira