Innlent

Leita hamingjunnar frá Hong Kong

Hersir Aron Ólafsson skrifar
Fjörutíu manna hópur þekktra listamanna frá Hong Kong vinnur nú að gerð heimildarmyndar um hamingjuna hér á landi. Forsprakki hópsins segir markmiðið vera að brjótast frá álaginu í skýjakljúfum stórborgarinnar og fá innblástur úr óspilltu umhverfi Íslands.

Hópurinn hélt svokallað JAM-session á Korpúlfsstöðum í dag ásamt íslensku tónlistarfólki þar sem þau suðu saman kínversk þjóðlög og forna íslenska tónlist. Atriðið verður hluti stuttrar heimildarmyndar um hamingjuna, en einn forsprakka verkefnisins er leik- og söngkonan Josie Ho. Josie er ein þekktasta stjarna Hong Kong, en hún segir mikilvægt að finna hamingjuna innra með sér á hverjum einasta degi.

„Mér skilst að veðrið hérna sé mjög sveiflukennt. Hong Kong á líka við sveifluvanda að stríða. Fólk verður alltaf of háð og tengt utanaðkomandi hlutum.“ segir Josie.

Með í för er Jim Chin, frægur skemmtikraftur í heimalandinu sem hefur haldið eins konar trúðanámskeið fyrir ferðalangana, en Josie segir hann kenna hópnum að taka lífið ekki of alvarlega. En hvers vegna kýs svo stór hópur fólks að fljúga þvert yfir hnöttinn í lægðirnar á Íslandi til þess að taka upp stutta mynd?

Ísland er mjög svalur og eiginlega smart staður. Það eru svo margir tónlistarmenn hérna að allir geta tekið upp hljóðfæri og byrjað að spila. Fyrir okkur, að geta spilað á hljóðfæri er bara...Guð minn góður, þú ert dýrlingur.“

Þrátt fyrir að tónlistarspil sé ekki jafn algengt í Hong Kong og hér er þó enginn skortur á hæfileikafólki sem kom með hópnum hingað til lands. Þar er auk Josie sjálfrar hljómsveit hennar Josie and the Uni Boys og Mc Yan, en hann var á sínum tíma fyrsti þekkti rappari heimalandsins. Og líkt og heyra má voru blandaðir íslenskir og kínverskir tónar afar grípandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×